Fotbolti.net
05.01.07 - 10:25
Magnús Már Einarsson

Boa Morte til West Ham (Staðfest)

Boa Morte til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur keypt Luis Boa Morte fyrirliða Fulham fyrir óuppgefna upphæð en þó er talið að kaupverðið sé fimm milljónir punda.
Hinn 29 ára gamli Boa Morte hefur verið orðaður við Newcastle og Benfica en nú er hann genginn til liðs við West Ham og er hann fyrsti leikmaðurinn sem Alan Curbishley fær til félagsins.

Chris Coleman stjóri Fulham hafði áður sagt að hann vildi ekki selja Boa Morte. Hann sagði hins vegar: ,,Ef að leikmaður er ekki ánægður með að spila fyrir þetta félag og lýsir því yfir að hann vilji fara, þá er ég tilbúinn að láta hann fara."

Boa Morte byrjaði feril sinn með Sporting Lissabon en fór árið 1997 til Arsenal á 1,5 milljónir punda, þá nítján ára gamall. Hann lék einungis 40 leiki með Arsenal og fór síðan til Southampton á 500 þúsund pund tveimur árum síðar.

Fulham fékk Boa Morte á láni sumarið 2000 og síðar keypti félagið hann á 1,7 milljónir punda.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.