Fotbolti.net
05.01.07 - 16:22
Magnús Már Einarsson

Edda Garðarsdóttir og Ólína Viðarsdóttir í KR (Staðfest)

Edda Garðarsdóttir er komin í KR.

Edda Garðarsdóttir er komin í KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

KR fékk í gær góðan liðsstyrk fyrir Landsbankadeild kvenna næsta sumar en miðjumaðurinn Edda Garðarsdóttir og varnarmaðurinn Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir skrifuðu þá undir samning við félagið. Þetta staðfesti Helena Ólafsdóttir þjálfari KR við Fótbolti.net í dag.
Edda Garðarsdóttir verður 28 ára gömul á þessu ári en hún lék áður með KR í tíu ár frá 1995 til 2005 er hún gekk til liðs við Breiðablik þar sem hún lék síðustu tvö tímabil.

Hún á að baki 129 leiki í efstu deild hér á landi og hefur skorað í þeim 36 mörk en þar af spilaði hún 13 leiki í deildinni í sumar og skoraði í þeim níu mörk. Hún á að baki 43 landsleiki fyrir Íslands hönd.

Ólína G. Viðarsdóttir hefur verið fyrirliði Breiðabliks en hún verður 25 ára gömul á þessu ári. Hún gekk til liðs við Breiðablik frá Grindavík í maí 2002 og hefur leikið 74 leiki í efstu deild og skorað 24 mörk.

Í sumar lék hún 13 leiki í Landsbankadeildinni og skoraði tvö mörk. Hún á að baki 10 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.