Fotbolti.net
05.01.12 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Jose Antonio Reyes til Sevilla (Staðfest)

Jose Antonio Reyes til Sevilla (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sevilla hefur keypt kantmanninn Jose Antonio Reyes frá Atletico Madrid en talið er að kaupverðið sé í kringum 3,5 milljónir evra eða um það bil 2,9 milljónir punda.
Reyes hóf feril sinn hjá Sevilla en hann gekk síðan til liðs við Arsenal á sautján milljónir punda árið 2004.

Reyes var síðar lánaður til Real Madrid áður en hann gekk til liðs við Atletico Madrid árið 2007.

Í síðustu leikjum Atletico hefur Reyes ekki verið í liðinu en Diego Simeone nýráðinn þjálfari liðsins vildi þrátt fyrir það halda leikmanninum.

Faðir Reyes á hins vegar við veikindi að stríða og því vildi leikmaðurinn ganga til liðs við uppeldisfélag sitt til að vera nær föður sínum.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.