Fotbolti.net
05.02.07 - 16:25
Magnús Már Einarsson

Bjarni Þór til Bournemouth á láni (Staðfest)

Bjarni Þór til Bournemouth á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Bjarni Þór Viðarsson hjá Everton hefur verið lánaður til Bournemouth í ensku annarri deildinni í einn mánuð en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í dag.
Bjarni hefur spjallað við Kevin Bond stjóra Bournemouth og lýst vel á félagið. ,,Ég hef spjallað nokkrum sinnum við hann í síma og lýst fínt á þetta," sagði Bjarni við Fótbolti.net í dag en eins og við greindum frá í síðustu viku hefur Bournemouth haft áhuga á að fá þennan efnilega leikmann að láni.

Bjarni skoraði einmitt jöfnunarmark Everton gegn Bournemouth í æfingaleik um þarsíðustu helgi og Bond hrósaði Bjarna meðal annars í viðtali eftir þann leik. ,,Hann er ungur leikmaður sem virðist vel á sig kominn. Hann spilar vinstra megin á miðjunni og er mjög sókndjarfur," sagði Bond.

Bournemouth er í bullandi fallhættu í ensku annarri deildinni en liðið er í 22.sæti af 24 liðum, með 31 stig eftir 30 leiki en liðið vann sinn fyrsta útisigur á tímabilinu nú um helgina þegar það lagði Chesterfield.

,,Þeir unnu síðasta leik held ég en eru samt í fallbaráttu. Það er vonandi að maður geti breytt því eitthvað," sagði Bjarni Þór við Fótbolti.net í dag en hann gæti leikið sinn fyrsta leik þegar fyrir Bournemouth þegar liðið tekur á móti Leyton Orient á laugardaginn.

Bjarni Þór sem er U-21 árs landsliðsmaður hefur leikið með varaliði Everton undanfarin tvö tímabil og þá hefur hann komist í 16-manna hóp fyrir leiki hjá liðinu í ensku úrvalsdeildinni.

Sjá einnig:
Bjarni Bournemouth vill fá Bjarna Þór Viðarsson á láni (30.janúar)
Bjarni Þór: Væri fínt að fara og fá smá reynslu og leiki (27.janúar)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.