Fotbolti.net
05.02.12 - 15:43
Brynjar Ingi Erluson

Guðlaugur Victor Pálsson til New York Red Bulls (Staðfest)

Guðlaugur Victor er kominn til Red Bulls

Guðlaugur Victor er kominn til Red Bulls

Canon

Mynd: Getty Images

Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður íslenska U21 árs landsliðsins hefur skrifað undir tveggja ára samning við bandaríska liðið New York Red Bulls en þetta staðfesti hann á Twitter nú rétt í þessu.
Guðlaugur, sem er 20 ára gamall miðjumaður var seinast á mála hjá skoska félaginu Hibernian en hann ákvað ásamt félaginu að rifta samningnum svo hann gæti leitað á önnur mið. Hann var hjá liðinu í eitt ár, en hann lék rétt um 40 leiki á tíma sínum þar.

Hann hóf feril sinn hjá Fjölni áður en hann flutti sig yfir til Fylkis. Þar lék hann upp yngri flokka áður en danska liðið AGF keypti hann til sín. Síðar keypti enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hann, en þar var hann fyrirliði unglinga- og varaliðsins áður en hann skrifaði undir samning við Hibernian á síðasta ári.

Red Bulls vildi fá hann í sínar raðir og hófust viðræður í síðasta mánuði. Hann gekkst undir læknisskoðun síðustu helgi og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í morgun. Nú bíður hann einungis eftir því að fá atvinnuleyfi til að leika með liðinu en það ætti að vera komið á næstu tveim vikum.

Hann verður fyrsti íslenski leikmaðurinn til þess að leika í MLS-deildinni og er nú orðinn liðsfélagi franska framherjans Thierry Henry sem er þessa stundina á láni hjá Arsenal og Rafael Marquez fyrrum leikmanns Barcelona.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.