05.03.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Hamarsmenn fá fjóra frá Kára (Staðfest)

Kristinn Aron Hjartarson í æfingaleik með Hamri gegn KV á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Hamar Hveragerði, sem leikur í fyrsta skipti í 2.deild í sumar, hefur fengið fjóra nýja leikmenn til liðs við sig en þeir koma allir frá Kára.
Leikmennirnir sem um ræðir eru Almar Björn Viðarsson, Ágúst Örlaugur Magnússon, Hilmir Hjaltason og Kristinn Aron Hjartarson.
Þeir eru allir uppaldir hjá ÍA en léku síðast með Kára í þriðju deildinni. Kári verður ekki með lið í þriðju deildinni í ár og þessir fjórir leikmenn hafa núna gengið til liðs við Hamarsmenn.
Ágúst Örlaugur á 7 landsleiki að baki bæði með U19 og U17 ára landsliði Íslendinga en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum undanfarin ár. Hann hefur auk þess að leika með ÍA verið á mála hjá Víkingi R. og KS hér á landi.
Almar Björn, Hilmir og Kristinn Aron hafa leikið með Kára undanfarið en Almar var einnig á mála hjá Skallagrími fyrir nokkrum árum.