Fotbolti.net
05.03.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Sigmar Ingi í Breiðablik (Staðfest)

Sigmar Ingi í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Auðunn Sigurðsson

Markvörðurinn Sigmar Ingi Sigurðarson hefur gengið til liðs við Breiðablik. Sigmar Ingi er uppalinn Bliki en hann lék með liðinu í fyrstu deildinni árið 2003.
Árið 2005 var Sigmar á mála hjá Hvöt en þessi 25 ára gamli leikmaður lék síðan með ÍH árin 2006 og 2007.

Í fyrra var hann að mestu í fríi í fótbolta en Sigmar var þó skráður í Hvöt og lék hann einn leik með liðinu í annarri deildinni.

Í vetur hefur Sigmar síðan æft með Breiðablik og núna hefur hann fengið félagaskipti.

Casper Jacobsen, sem hefur varið mark Blika undanfarin tvö ár, mun ekki leika með liðinu í sumar en hins vegar kom Ingvar Þór Kale til félagsins í síðustu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.