Albert Hafsteinsson hefur verið ráðinn í þjálfarateymi Kára og hjá 2. flokki ÍA. Kári spilar í 2. deild í sumar.
Skagamenn þekkja Albert vel en hann ólst upp hjá félaginu. Hann spilaði 188 leiki fyrir liðið og skoraði 21 mark. Hann kom við sögu í 17 leikjum í Bestu deildinni síðasta sumar.
Skagamenn þekkja Albert vel en hann ólst upp hjá félaginu. Hann spilaði 188 leiki fyrir liðið og skoraði 21 mark. Hann kom við sögu í 17 leikjum í Bestu deildinni síðasta sumar.
Hann mun vinna með Úlfi Arnari Jökulssyni sem var ráðinn á Skagann fyrir áramótin.
„Nú fetar Albert sín fyrstu skref í þjálfun og er það mikill fengur fyrir félagið að fá hann inn í starfið. Þar getur hann miðlað sinni dýrmætu reynslu og stutt við unga og efnilega leikmenn félagsins til framtíðar. Við bjóðum Albert hjartanlega velkominn í nýtt hlutverk," segir í tilkynningu ÍA.


