Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rooney tilbúinn að labba frá risastórum samningi
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Wayne Rooney, einn besti fótboltamaður í sögu Englendinga, er sagður tilbúinn að hætta sem séfræðingur hjá Match of the Day og snúa aftur í þjálfun þrátt fyrir að hafa skrifað undir risasamning við breska ríkisútvarpið á síðasta ári.

Rooney er vel launaður í sjónvarpinu, hann er með 400 þúsund pund á ári sem jafngildir rúmlega 66 milljónum íslenskra króna.

Stjóraferill Rooney hefur ekki farið vel enn sem komið er en hann er æstur að snúa aftur í þann hluta leiksins. Hann er sagður hafa tilkynnt um það í fertugsafmæli eiginkonu sinnar, Coleen.

Rooney, sem er fyrrum stjóri Derby County, DC United, Birmingham og Plymouth vonast til að snúa aftur á hliðarlínuna í sumar hjá annað hvort liði í Championship á Englandi eða í League One, sem er C-deild.
Slapp
banner
banner
banner