05.05.08 - 17:07
Magnús Már Einarsson
Hans Mathiesen í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Keflavíkur

Mynd: Heimasíða Keflavíkur
Keflavík hefur samið við danska miðjumanninn Hans Mathiesen en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Mathiesen var leystur undan samningi hjá Fram í síðustu viku eftir þriggja ára dvöl hjá félaginu.
Hann hefur æft með Keflvíkingum og lék æfingaleik með liðinu gegn Grindavík síðastliðnn fimmtudag. Um helgina sömdu Keflvíkingar síðan við hann.
,,Nú þegar aðeins er tæp vika í fyrsta leik Keflavíkur gegn Val er ljóst að Mathiesen er góð viðbót í öflugan leikmannahóp Keflavíkur," sagði á heimasíðu Keflavíkur en fyrsta umferð Landsbankadeildarinnar er á laugardaginn.
Mathiesen, sem er 24 ára gamall, lék 56 leiki með Fram og skoraði eitt mark á ferli sínum hjá félaginu.

Heimild: Heimasíða Keflavíkur