Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Ajax spurðist fyrir um Slot
Mynd: EPA
Hollenska félagið Ajax spurðist fyrir um Arne Slot, stjóra Liverpool, varðandi að taka við félaginu í sumar en þetta segir blaðamaðurinn Mike Verweij.

Slot situr í heitu sæti hjá Liverpool aðeins ári eftir að hafa unnið deildina með félaginu.

Enskir miðlar eru sannfærðir um að Liverpool ætli sér að halda Slot á næsta tímabili en það stoppar ekki önnur félög í að kanna stöðuna og sjá hvort hann verði mögulega laus.

Mike Verweij sem er mjög áreiðanlegur blaðamaður í Hollandi segir að Ajax hafi sett sig í samband við umboðsmann Slot og spurst fyrir um stöðu hans, en hafi fengið þau svör að hann ætli að vera áfram hjá Liverpool og að hann hafi ekki áhuga á að fara aftur til Hollands á þessum tímapunkti.

Slot, sem hefur þjálfað Cambuur, AZ og Feyenoord í heimalandinu, gæti mögulega tryggt Liverpool í Meistaradeild Evrópu fyrir næsta tímabil, en á heildina litið hefur þetta verið vonbrigðatímabil hjá meisturunum sem er úr leik í öllum keppnum.

Michel van Girona er nú talinn líklegastur til að taka við Ajax af Oscar Garcia sem mun hætta með liðið eftir tímabilið.
Slapp
banner
banner