Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 17:55
Ívan Guðjón Baldursson
Akpom og Kipré í ensku úrvalsdeildina (Staðfest)
Mynd: Ipswich
Mynd: Ipswich
Ipswich Town tryggði sér annað sæti Championship deildarinnar á lokadegi deildartímabilsins og fara lærlingar Kieran McKenna því beint aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa fallið í fyrra.

Ipswich er búið að staðfesta yfirvofandi kaup á tveimur lánsmönnum sem gerðu frábæra hluti með liðinu á tímabilinu.

Chuba Akpom verður keyptur úr röðum Ajax útaf kaupákvæði sem virkjaðist þegar Ipswich tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni. Hann hefur þó ekki verið í mikilvægu hlutverki hjá Ipswich, þar sem hann er með 2 mörk og 1 stoðsendingu á rúmlega 1000 spiluðum mínútum.

Akpom er 30 ára gamall og gildir samningur hans við Ipswich næstu þrjú árin. Ipswich borgar 7 milljónir punda til að ganga frá kaupunum.

Cédric Kipré reyndist mikilvægur hlekkur í hjarta varnarinnar hjá Ipswich en hann lék með liðinu á láni frá franska félaginu Stade de Reims.

Kipré er 29 ára gamall og virkjaðist kaupákvæðið á honum sjálfkrafa þegar Ipswich komst upp um deild eftir að hann hafði spilað meira en helming leikja liðsins á tímabilinu.

Ipswich borgar aðeins um 2,5 milljónir til að kaupa Kipré sem gerir tveggja ára samning.

„Það er frábær tilfinning að vera opinberlega partur af þessu risastóra félagi eftir allt sem við höfum afrekað saman. Ég hef notið mín frá fyrsta degi í Ipswich, ég fékk svo góðar móttökur að mér leið ekki eins og ég væri hérna á lánssamningi. Ég er himinlifandi að vera orðinn leikmaður félagsins," sagði Kipré.

„Ég get ekki beðið eftir næstu leiktíð. Það er draumur minn að spila í ensku úrvalsdeildinni."

Kipré ólst upp hjá PSG í heimalandinu og hóf atvinnumannaferilinn hja Leicester City en spilaði aldrei leik fyrir meistaraflokk. Hann hefur komið við hjá Wigan, West Brom og Cardiff í Championship deildinni án þess að fá nokkurn tímann að spreyta sig í úrvalsdeildinni.


Slapp
banner
banner