Brentford er að ganga frá kaupum á austurríska varnarmanninum Jannik Schuster frá RB Salzburg. Þetta fullyrðir Fabrizio Romano á X.
Schuster er 19 ára gamall miðvörður sem hefur verið að standa sig vel með aðalliði Salzburg á tímabilinu.
Hann hefur spilað 19 deildarleiki og gert eitt mark með liðinu sem er í 3. sæti í meistarariðli deildarinnar og áfram í harðri baráttu um titilinn.
Samkvæmt Romano mun Schuster spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð, en Brentford er að ganga frá samkomulagi við Salzburg um kaup á honum.
Verðmiðinn nemur um 20 milljónum evra og er komið munnlegt samkomulag á milli félaganna.
Schuster á 18 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Austurríkis, en hann er í dag fastamaður í U21 árs landsliðinu.
???? EXCLUSIVE: Brentford are closing in on deal to sign Austrian centre back Jannik Schuster from RB Salzburg!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 4, 2026
Deal almost done for €20m package with club to club agreement verbally in place.
Here we go, soon. ???????????? pic.twitter.com/zDImlouFdT




