05.06.06 - 07:10
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Jerko Leko til Monaco (Staðfest)

Jerko Leko í baráttunni með króatíska landsliðinu

Mynd: Getty Images

Jerko Leko í baráttunni með króatíska landsliðinu

Mynd: Getty Images
Króatíski landsliðsmaðurinn Jerko Leko hefur gengið til liðs við franska úrvalsdeildarliðið Monaco. Þessi varnarsinnaði miðjumaður hefur spilað með úkraínska liðinu Dynamo Kiev síðustu fjögur árin en sagði nýlega að hann vildi breyta til.
Leko tók sér tíma frá undirbúningi króatíska landsliðsins fyrir Heimsmeistaramótið í Þýskalandi sem hefst um helgina til að ganga frá sölunni og vonast hann til að hún gæti tryggt honum öruggt sæti í landsliðinu.
,,Ég vildi ganga til sterkt evrópskt lið og ég er viss um að með því að spila fyrir Monaco muni ég tryggja mér öruggt sæti í landsliðinu,” sagði Leko.
Leko mun því reyna að heilla nýja þjálfara sinn í sumar en Króatar eru með Ástralíu, Japan og heimsmeisturunum frá Brasilíu í F riðli.