05.06.11 - 08:27
Hafliði Breiðfjörð
Diego Alves til Valencia (Staðfest)

Diego Alves í leik með Almeria.

Mynd: Getty Images

Diego Alves í leik með Almeria.

Mynd: Getty Images
Valencia hefur fengið til liðs við sig brasilíska markvörðinn Diego Alves frá Almeria og gert við hann fjögurra ára samning.
Alves sem er 25 ára gamall segir að helsta ástæða þess að hann ákvað að skipta hafi verið sú að Valencia er í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa endað í þriðja sæti spænsku deildarinnar á síðstu leiktíð.
Alves var í fjórar leiktíðir hjá Almeria sem endaði í botnsæti spænsku deildarinnar í ár og féll því í 2. deildina.
Hann mun þurfa að berjast um byrjunarliðssæti við Vicente Guaita en hann samdi út tímabilið 2014-2015.
Miguel Angel Moya hefur einnig samið til 2013. Valencia leysti hinsvegar hinn 39 ára gamla Cesar Sanchez undan samningi.

Heimild: AP