Milos Milojevic hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Al-Nasr sem leikur í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Milos gerir eins árs samning við félagið sem gildir út komandi keppnistímabil, en Al-Nasr endaði í sjötta sæti efstu deildar í fyrra með 38 stig úr 26 umferðum.
Milos, sem stýrði Víkingi R. og Breiðablik hér á landi, býr yfir reynslu frá Furstadæmunum þar sem Al-Nasr er þriðja félagið sem hann tekur við á þremur árum í landinu.
Hann byrjaði hjá Al-Wasl og tók svo við Sharjah FC í fyrra.
Milos hefur einnig þjálfað Rauðu stjörnuna, Malmö, Hammarby og Mjällby á flottum þjálfaraferli sem hófst hér á landi.


