„Þetta tókst, þetta var eitthvað sem við þurftum heldur betur að hafa fyrir," sagði Sandra María Jessen eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld.
Sandra María átti frábæran leik og átti stoðsendinguna í sigurmarki Íslands sem Thelma Karen Pálmadóttir skoraði.
Sandra María átti frábæran leik og átti stoðsendinguna í sigurmarki Íslands sem Thelma Karen Pálmadóttir skoraði.
Lestu um leikinn: Úkraína 0 - 1 Ísland
„Það er mjög gaman að eiga þátt í marki. Við náðum að brjóta þær nokkrum sinnum upp með því að vinna skallaeinvígi og komast á bak við þær. Thelma kláraði þetta frábærlega og það gleður mig mikið að sjá hana skora. Hún er búin að leggja miklu vinn í þetta og á þetta fullkomlega skilið."
Thelma Karen, 18 ára, gerði sitt fyrsta landsliðsmark í leiknum. „Það verður gaman að fylgjast með henni, þetta er bráðefnilegur leikmaður sem getur allt ef hún leggur inn vinnuna."
Ella, dóttir Söndru Maríu, upplifði stóra stund í kvöld þegar hún fékk að leiða mömmu sína inn á í landsleik í fyrsta sinn.
„Hún mætti beint inn á völl eftir leik og fékk í fyrsta sinn í landsleik að leiða mig inn á. Það var mjög sérstök tilfinning fyrir mig. Að fá að fagna eftir leik með henni var líka mjög gaman."
Hversu gaman ætli þetta sé fyrir hana?
„Þetta er held ég eitthvað sem hún á eftir að átta sig enn meira á seinna. Hún elskar að vera hérna og er algjör prinsessa. Hún gæti ekki verið heppnari," sagði Sandra María en vel er hugsað um Ellu innan hópsins.






















