PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 10:04
Kári Snorrason
Þetta eru HM lýsendur RÚV
Hörður Magnússon og Ólafur Kristjánsson koma að lýsingum á HM.
Hörður Magnússon og Ólafur Kristjánsson koma að lýsingum á HM.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
RÚV hefur tilkynnt hverjir munu lýsa leikjunum 104 á heimsmeistaramótinu sem hefst eftir sex daga.

Hörður Magnússon og Gunnar Birgisson verða í stórum hlutverkum sem lýsendur. Almarr Ormarsson, Einar Örn Jónsson, Gunnar Ormslev og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson verða einnig að lýsa á mótinu.

Þeir verða með góða menn sér við hlið en meðlýsendur og sérfræðingar eru Bjarni Guðjónsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Kjartan Henry Finnbogason og Ólafur Kristjánsson.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner