PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 13:12
Elvar Geir Magnússon
Vilja ekki Keane vegna tengsla hans við Ísrael
Robbie Keane.
Robbie Keane.
Mynd: EPA
Nokkrir stuðningsmannahópar skoska liðsins Celtic hafa gefið út yfirlýsingu þar sem þeir segjast mótfallnir því að Robbie Keane taki við sem stjóri.

Ástæðan eru tengsl hans við Ísrael en hann var stjóri Maccabi Tel Aviv og ákvað að halda áfram í því starfi eftir að átökin brutust út í Gaza.

Greint hefur verið frá því að Keane hafi átt í viðræðum við Skotlandsmeistarana en hann er markahæstur í sögu írska landsliðsins og hefur unnið deildartitla sem stjóri í Ísrael og Ungverjalandi.

„Að okkar mati er ómögulegt að horfa framhjá því að Robbie Keane kaus að halda áfram hjá Maccabi Tel Aviv meðan þjóðarmorð var framið á Gaza," segir í yfirlýsingunni.

Celtic stóð uppi sem Skotlandsmeistari fimmta árið í röð auk þess að vinna skoska bikarinn. Hinn reynslumikli Martin O'Neill stýrði liðinu sem bráðabirgðastjóri.
Slapp
banner
banner
banner