Fotbolti.net
05.07.06 - 11:19
Guðmundur Dagur Ólafsson

Ingólfur Ragnars til Bröndby (Staðfest)

Ingólfur Ragnars til Bröndby (Staðfest)
Canon

Mynd: Oddrane.no

Ingólfur Ragnarsson hefur gengið í raðir danska félagsins Bröndby frá norska félaginu Odd Grenland en Ingólfur er aðeins 18 ára gamall. Hann mun fyrst um sinn aðeins spila með U21 liði Bröndby en mun æfa með aðaliðinu.
Foreldrar Ingólfs eru bæði íslensk en hann hefur samt spilað fyrir yngri landslið Dana því hann flutti tiltölulega ungur út.

Hann fékk hinsvegar leyfi hjá danska knattspyrnusambandinu að spila með Íslandi á norðurlandamóti U17 í fyrra og skoraði hann eitt mark í 4-1 sigri á Svíum.

Norska knattspyrnusambandið hefur líka fylgst með Ingólfi og voru áhugasamir að fá hann til spila fyrir hönd Noregs þegar hann var hjá Odd Grenland. Ingólfur er enn löglegur að spila fyrir Ísland ef að hann kýs það.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.