Fotbolti.net
05.07.06 - 15:54
Magnús Már Einarsson

Fabio Aurelio til Liverpool (Staðfest)

Aurelio er hér lengst til hægri en hann gerði fjögurra ára samning við Liverpool.

Aurelio er hér lengst til hægri en hann gerði fjögurra ára samning við Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur fengið brasilíska vinstri bakvörðinn Fabio Aurelio frá Valencia en samningur hans við spænska liðið rann út í sumar. Liverpool hefur lengi verið á eftir þessum 26 ára leikmanni sem getur einnig spilað á miðjunni og nú er hann kominn á Anfield.
Þar hittir hann fyrir Rafael Benitez sem þjálfari Aurelio einmitt hjá Valencia á sínum tíma áður en hann tók við stjórnartaumunum hjá Liverpool.

,,Fabio er leikmaður með mikil gæði og það er gott fyrir okkur að fá hann. Tæknin hans er frábær og hann hefur frábæran vinstri fót sem getfur liðinu mikla möguleika. Hann hefur gott hugarfar og er sigurvegari," sagði Benitez við heimasíðu Liverpool um Aurelio.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.