05.07.06 - 16:15
Hafliði Breiðfjörð
Wright-Phillips til Southampton (Staðfest)

Bradley Wright-Phillips í leik með Man City á síðustu leiktíð.

Mynd: Getty Images

Bradley Wright-Phillips í leik með Man City á síðustu leiktíð.

Mynd: Getty Images
Southampton hafa keypt Bradley Wright-Phillips frá Manchester City en kaupverðið var ekki gefið upp. Wright-Phillips sem er 21 árs gamall náði ekki að tryggja sér fast sæti í liði Manchester City á síðustu leiktíð og koma Paul Dickov frá Blackburn hefur minnkað möguleika hans.
Wright-Phillips náði aðeins að skora tvö mörk í 40 leikjum með aðalliði City en skoraði 32 í 46 leikjum með varaliðinu. Hluti af kaupverði hans var greiddur með 250 þúsund pundum sem stuðningsmaður liðsins vann í kynningaleik Coca Cola.
Bradley Wright-Phillips er bróðir Shaun Wright-Phillips sem Chelsea keypti frá Manchester City síðasta sumar. Þeir eru ættleiddir synir Ian Wright sem sló í gegn í framlínu Arsenal á sínum tíma.
Bradley Wright-Phillips er bróðir Shaun Wright-Phillips sem Chelsea keypti frá Manchester City síðasta sumar. Þeir eru ættleiddir synir Ian Wright sem sló í gegn í framlínu Arsenal á sínum tíma.
