Fotbolti.net
05.07.06 - 18:18
Hafliði Breiðfjörð

West Ham kaupir Cole frá Chelsea (Staðfest)

Carlton Cole ásamt Eiði Smára en báðir eru þeir hættir hjá Chelsea. Cole fór til West Ham í kvöld en Eiður Smári til Barcelona í síðasta mánuði.

Carlton Cole ásamt Eiði Smára en báðir eru þeir hættir hjá Chelsea. Cole fór til West Ham í kvöld en Eiður Smári til Barcelona í síðasta mánuði.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham gengu nú í kvöld frá kaupum á Carlton Cole framherja Chelsea en kaupverðið fékkst ekki uppgefið. Cole sem er 22 ára gamall hefur ekki náð að tryggja sér sæti í Chelsea liðinu þrátt fyrir að hafa staðið sig vel með U-21 árs landsliði Englands.
Hann lék 12 leiki á síðustu leiktíð fyrir Chelsea og skoraði í FA Cup sigrinum á Huddersfield.

Cole hefur nú gert fjögurra ára samning við West HAm þar sem hann fær að berjast um byrjunarliðssæti við Dean Ashton, Teddy Sheringham, Bobby Zamora og Marlon Harewood.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.