Fotbolti.net
05.07.06 - 22:05
Guðmundur Dagur Ólafsson

Lopez Caro tekur við Levante (Staðfest)

Lopez Caro var aðeins rúman mánuð hjá Racing

Lopez Caro var aðeins rúman mánuð hjá Racing

Canon

Mynd: Getty Images

Juan Ramon Lopez Caro hefur hætt sem stjóri Racing Santander og tekið við nýliðunum í spænsku deildinni, Levante. Hann er aðeins búinn að vera hjá Santander frá því í maí en hann stýrði Real Madrid á síðasta tímabili.
Samkvæmt fréttum frá Spáni þá hætti Lopez Caro hjá Racing vegna þess að hann var ónánægður með hve litlu hann fékk ráðið í kaupum á leikmönnum. Levante voru fljótir að tryggja sér hann og hefur hann skrifað undir eins árs samning við félagið með möguleika á framlengingu um annað ár.

Juan Jose Maqueda mun vera aðstoðarmaður Lopez Caro á meðan Pau Alberti mun vera þrekþjálfari þeirra. Racing voru fljótir að finna arftaka Lopez Caro því þeir hafa ráðið Miguel Angel Portugal sem stjóra liðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.