05.07.07 - 06:00
Garðar Ingi Leifsson
Wright til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham fékk í gær enska markvörðinn Richard Wright frá Everton í frjálsri sölu. Wright sem er 29 ára gamall, fyrrum markvörður Ipswich og Arsenal er þriðji leikmaðurinn sem Alan Curbishley kaupir í sumar.
Wright lék 71 leik fyrir Everton sem keypti hann á 3.2 milljónir punda árið 2002.
Wright sem þótti á sínum tíma einn efnilegasti markvörður Englands hefur ekki náð sér á strik hjá Everton og var orðinn þriðji markvörður á eftir Tim Howard og Ian Turner.
Hann hefur leikið tvo landsleiki fyrir England en lék aðeins tvo leiki með Everton á síðustu leiktíð.

Heimild: BBC