Fotbolti.net
05.07.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Todorov og Weaver til Charlton (Staðfest)

Svetoslav Todorov.

Svetoslav Todorov.

Canon

Mynd: Getty Images

Charlton fengu í gær framherjann Svetoslav Todorov og markvörðinn Nicky Weaver frítt frá Portsmouth og Manchester City og hefur Charlton nú fengið átta nýja leikmenn síðan félagið féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor.
Weaver sem er 28 ára skrifaði undir þriggja ára samning við Charlton eftir tíu ára dvöl hjá City þar sem að hann lék yfir 200 leiki.

Todorov sem er einnig 28 ára kemur frá Búlgaríu en hann gerði eins árs samning við Charlton eftir að hafa fallið niður goggunarröðina og ákveðið að yfirgefa Portsmouth.

,,Að yfirgefa Portsmouth var stór ákvörðun fyrir mig en ég hlakka til að spila með Charlton," sagði Todorov sem að vonast til að gera góða hluti með Charlton.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.