Fotbolti.net
05.07.07 - 11:41
Magnús Már Einarsson

Younes Kaboul til Tottenham (Staðfest)

Martin Jol hefur krækt í efnilegan varnarmann.

Martin Jol hefur krækt í efnilegan varnarmann.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur keypt varnarmanninn Younes Kaboul frá Auxerre en kaupverðið er talið vera átta milljónir punda. Kaboul sem er fyrirliði U-21 árs landsliðs Frakka hafði einnig verið orðaður við Roma, Inter Milan og Portsmouth.
,,Ef þú spyrð fólk í Frakklandi hver sé efnilegasti varnarmaðurinn þá mun það segja Younes Kaboul," sagði Martin Jol stjóri Tottenham við heimasíðu félagsins.

Kaboul er náinn vinur Abou Diaby miðjumanns Arsenal sem kom til Englands frá Auxerre í fyrra.

Tottenham hefur í sumar keypt auk Kaboul þá Gareth Bale á tíu milljónir punda og Darren Bent á 16,5 milljónir punda.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.