05.07.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Didier Digard til Middlesbrough (Staðfest)

Southgate hefur verið með veskið á lofti undanfarna daga.

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hefur keypt miðjumanninn Didier Drigard frá Paris St-Germain á fjórar milljónir punda.
Digard, sem er 21 árs gamall, hefur staðist læknisskoðun og skrifað undir fjögurra ára samninng við Boro.
Hann hafði áður verið dæmdur í leikbann hjá franska félaginu eftir að hann sagði félagið vera að koma í veg fyrir félagaskiptin til Boro.
,,Didier er varnarsinnaður miðjumaður sem er góður íþróttamaður og góður tæklari,\" sagði Gareth Southgate stjóri Middlesbrough við heimasíðu félagsins.
Southgate hefur verið duglegur á leikmannamarkaðnum undanfarna daga því hann keypti einnig framherjann Marvin Emnes frá Sparta Rotterdam nú fyrir helgi.

Heimild: BBC