Fotbolti.net
05.07.11 - 15:26
Magnús Már Einarsson

Dietmar Hamann tekur við Stockport (Staðfest)

Dietmar Hamann tekur við Stockport (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Dietmar Hamann hefur verið ráðinn stjóri Stockport County í ensku utandeildinni.
Þessi 37 ára Þjóðverji lék meðal annars með Newcastle, Liverpool og Manchester City á ferli sínum auk þess sem hann lék 62 landsleiki með Þjóðverjum.

Á síðasta tímabili var Hamann í þjálfaraliði Leicester City hjá Sven-Goran Eriksson.

Hamann mun núna fá tækifæri til að stýra Stockport en hann tekur við af Ray Mathias í kjölfar þess að fjárfestingahópur frá Liverpool keypti félagið.

Stockport féll úr fjórðu efstu deild á Engandi í maí og mun því leika í utandeildinni í fyrsta skipti á næsta tímabili.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.