Fotbolti.net
05.08.09 - 14:01
Magnús Már Einarsson

Frederic Piquionne til Portsmouth (Staðfest)

Frederic Piquionne til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur fengið Frederic Piquionne, framherja Lyon, á láni en samningurinn gildir út komandi tímabil.
Þessi þrítugi leikmaður náði sér ekki á strik á fyrsta tímabili sínu hjá Lyon og eftir komu Lisandro Lopez frá Porto þá var franska félagið tilbúið að leyfa Piquionne að reyna fyrir sér annars staðar.

Portsmouth hefur verið í leit að framherja eftir að Peter Crouch fór til Tottenham og nú hefur félagið krækt í Piquionne.

Piquionne getur leikið sem fremsti maður sem og á kantinum en Portsmouth mun einnig hafa forkaupsrétt á honum eftir að lánssamningurinn rennur út næsta sumar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.