Fotbolti.net
05.08.09 - 22:45
Alexander Freyr Tamimi

Xabi Alonso til Real Madrid (Staðfest)

Xabi Alonso er formlega genginn til liðs við Real Madrid.

Xabi Alonso er formlega genginn til liðs við Real Madrid.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur gengið frá kaupunum á spænska miðjumanninum Xabi Alonso frá Liverpool og hefur hann skrifað undir fimm ára samning við spænsku risana.
Félögin tvö komust að samkomulagi um kaupverðið á þessum spænska landsliðsmanni í gærkvöldi og er talið að Real muni borga í kringum 30 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Alonso bætist í hóp mjög sterkra leikmanna sem hafa gengið til liðs við Madrídingana í sumar en hann kemur til liðsins í kjölfarið á þeim Kaká, Cristiano Ronaldo, Karim Benzema, Raul Albiol og liðsfélaga sínum hjá Liverpool, Alvaro Arbeloa. Samtals hafa Real Madrid því eytt yfir 200 milljónum punda í leikmenn í þessum félagsskiptaglugga.

Madrídingarnir hafa greint frá því að Alonso verði síðasti leikmaðurinn sem þeir kaupa í sumar og munu þeir nú einblína á það að losa sig við þá leikmenn sem eru ekki í framtíðaráformum þjálfarans Manuel Pellegrini, og má þar meðal annars nefna Klaas-Jan Huntelaar og fleiri samlanda hans.

,,Fyrir svolitlu síðan varð ég ákveðinn í því að fara og niðurstaðan var sú sem ég hafði vonast eftir. Hingað er ég kominn og ég er mjög ánægður,\" sagði Alonso eftir að félagsskiptin gengu í garð.

,,Þetta er áskorun sem mér fannst vera nauðsynleg fyrir minn fótboltaferil. Ég vildi fá nýja lífreynslu og þegar Madrid kom inn ákvað ég að fara aftur til Spánar. Það er mikilvægt skref í mínum ferli að koma til Real Madrid.\"

Heimild: Sky | Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.