Fotbolti.net
05.08.11 - 12:35
Magnús Már Einarsson

Rúmenskur markvörður til Manchester City (Staðfest)

Rúmenskur markvörður til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur keypt markvörðinn Costel Pantilimon frá Poli Timisoara í Rúmeníu.

Þessi 24 ára gamli markvörður verður varamarkvörður hjá Manchester City en hann fyllir skarð Shay Given sem fór til Aston Villa á dögunum.
Pantilimon þekkir aðeins til Manchester City því hann lék tvívegis gegn liðinu í Evrópudeildinni á síðasta tímabili.

Pantilimon lék sinn fyrsta landsleik með Rúmeníu árið 2008 en Arsenal og Inter hafa sýnt honum áhuga undanfarin ár.

Hann hefur núna samið við Manchester City en hann er fjórði leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar á eftir Sergio Aguero, Gael Clichy og Stefan Savic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.