Fotbolti.net
05.09.26 - 16:34
Brynjar Ingi Erluson

Lærisveinar Freys aftur á sigurbraut - Bjarki Steinn á toppnum

Rosenborg er þremur stigum frá Evrópusæti

Rosenborg er þremur stigum frá Evrópusæti

Canon

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Rosenborg komu sér aftur á sigurbraut í norsku úrvalsdeildinni með því að vinna öruggan 4-0 sigur á Ham Kam í dag.
Rosenborg hefur farið frábærlega af stað undir stjórn Freys og komst aftur á sigurbraut í dag. Liðið hafði tapað síðasta deildarleik eftir tvo sigra í röð.

Það var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi. Rosenborg var marki yfir í hálfleik og bætti þremur við í þeim síðari.

Liðið er í 6. sæti með 27 stig, þremur stigum frá Evrópusæti þegar ellefu umferðir eru eftir. Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með HamKam sem er í 10. sæti með 23 stig.

Atli Barkarson var í byrjunarliði Sogndal í 2-0 tapi fyrir Haugesund í norsku B-deildinni. Sogndal er í 13. sæti með 22 stig.

Eyþór Martin Björgólfsson kom inn af bekknum hjá Motherwell í 1-0 tapi fyrir Rangers í skosku úrvalsdeildinni. Motherwell er í 5. sæti með átta stig.

Davíð Kristján Ólafsson byrjaði hjá Polonia Warszawa sem tapaði 2-1 fyrir S. Rzeszow í pólsku B-deildinni. Þetta var annað deildartap Polonia í röð en liðið er í 6. sæti með tíu stig.

Róbert Frosti Þorkelsson var í byrjunarliði GAIS í markalausu jafntefli við Häcken í sænsku úrvalsdeildinni. GAIS er í 9. sæti með 27 stig.

Bjarki Steinn Bjarkason, sem gekk til liðs við Sudtirol frá Venezia í sumar, byrjaði í 2-0 sigri á sínum gömlu félögum í Catanzaro. Sudtirol er á toppi ítölsku B-deildarinnar með sjö stig.

Nóel Atli Arnórsson hafði betur gegn Adam Inga Benediktssyni í Íslendingaslag þegar Álaborg vann 2-0 sigur á AB í dönsku B-deildinni. Álaborg er í 5. sæti með ellefu stig en AB í því níunda með sex stig.
Bjarki Steinn er á toppnum með Sudtirol

Bjarki Steinn er á toppnum með Sudtirol

Canon

Mynd: FCS

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.