Fotbolti.net
05.10.09 - 18:15
Hafliði Breiðfjörð

Silja Þórðardóttir í FH (Staðfest)

Silja Þórðardóttir.

Silja Þórðardóttir.

Canon

Mynd: FH

Kvennaboltinn
Silja Þórðardóttir mun leika með FH í Pepsi deild kvenna næsta sumar eftir eins árs hlé vegna náms í Bandaríkjunum en félagið tilkynnti þetta í dag.
Silja á að baki tæplega 100 meistaraflokksleiki, flesta með FH en einnig með Breiðablik.

Hún hefur auk þess spilað 18 landsleiki með yngri landsliðum Íslands.

Engin vafi er á að Silja kemur til með að styrkja hið unga og efnilega FH lið næsta sumar.

FH vann sér óvænt sæti í Pepsi-deild kvenna á næstu leiktíð með því að leggja ÍBV í tveimur umspilsleikjum.

Fyrr í dag tilkynnti félagið að Jón Þór Brandsson og Arna Steinsen verði áfram þjálfarar liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.