Fotbolti.net
05.10.10 - 12:35
Magnús Már Einarsson

Heimir Þorsteins og Haukur Ingvar þjálfa Fjarðabyggð (Staðfest)

Haukur Ingvar Sigurbergsson.

Haukur Ingvar Sigurbergsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukur Ingvar Sigurbergsson og Heimir Þorsteinsson verða þjálfarar Fjarðabyggðar í annarri deildinni næsta sumar.
Páll Guðlaugsson og Heimir stýrðu Fjarðabyggð í sumar en stjórn félagsins ákvað að framlengja ekki óbreytta samninga við þá.

Haukur Ingvar, sem hefur verið fyrirliði Fjarðabyggðar, verður spilandi þjálfari og Heimir mun þjálfa liðið með honum.

Haukur Ingvar missti af tímabilinu í sumar eftir að hafa slitið krossband en hann verður klár í slaginn fyrir næsta sumar.

Frétt á heimasíðu Fjarðabyggðar
Stjórn Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar hefur síðustu vikur unnið að því að ganga frá þjálfara og leikmannamálum félagsins. Ljóst er að ekki verða framlengdir óbreytt samningar við þjálfarana Pál Guðlaugsson og Heimi Þorsteinsson.Stjórnin hefur markað þá stefnu að hver þjálfari verði einungis með einn flokk af flokkum félagsins þ.e. Mfl. karla, Mfl. kvenna og 2. flokkur karla.

Í vikunni lýsti fyrirliði karlaliðs Fjarðabyggðar, Haukur Ingvar Sigurbergsson vilja sínum að koma að þjálfun mfl. karla og varð það niðurstaðan að ráða Hauk Ingvar sem spilandi þjálfara ásamt Heimi Þorsteinssyni. Ekki hafa verið ráðnir þjálfarar fyrir mfl. kvenna og 2. flokk karla en það skýrist væntanlega á næstunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.