05.10.10 - 16:26
Hafliði Breiðfjörð
Jón Páll Pálmason tekur við kvennaliði Fylkis (Staðfest)

Jón Páll á hliðarlínunni í leik með Hetti í sumar. Hann mun þjálfa kvennalið Fylkis á næstu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Páll Pálmason er nýr þjálfari kvennaliðs Fylkis og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Jón Páll tekur við starfinu af Birni Kristni Björnssyni sem lét af störfum á dögunum eftir að samningur hans við félagið rann út.
Jón Páll sem er 28 ára gamall hafði hafið feril sinn í þjálfun hjá meistaraflokki á nýliðnu tímabili þegar hann tók við liði Hattar í 2. deild karla fyrir ári síðan. Undir hans stjórn náði liðið sínum besta árangri frá upphafi, 4. sæti 2. deild með 36 stig. Hann hætti svo með liðið að tímabilinu loknu og tekur nú við kvennaliði Fylkis.
Áður en hann tók við liði Hattar hafði hann þjálfað alla yngriflokka FH þar sem hann hóf þjálfaraferil sinn haustið 2003 og varð sex sinnum Íslandsmeistari, með 4. 5. og 6. flokki.
Fylkir mun kynna Jón Pál til sögunnar sem nýjan þjálfara liðsins annað kvöld.