Fotbolti.net
05.11.09 - 13:54
Magnús Már Einarsson

Hjörtur Júlíus Hjartarson til ÍA (Staðfest)

Hjörtur í leik með ÍA gegn KR fyrir nokkrum árum.

Hjörtur í leik með ÍA gegn KR fyrir nokkrum árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Hjörtur Júlíus Hjartarson hefur ákveðið að fresta því að leggja skóna á hilluna og leika með sínu gamla félagi ÍA á næsta tímabili.
Hjörtur, sem er 35 ára gamall, mun skrifa undir eins árs samning við Skagamenn á morgun en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.

Í sumar skoraði Hjörtur tvö mörk í níu leikjum með Þrótti í Pepsi-deildinni áður en hann fór til Selfyssinga í júlí. Þar skoraði Hjörtur sjö mörk í fyrstu deildinni og hjálpaði liðinu upp um deild.

Eftir tímabilið sagðist Hjörtur vera hættur en hann hefur núna ákveðið að leika með Skagamönnum næsta sumar.

Hjörtur er uppalinn á Akranesi og hann lék með ÍA frá 2000-2007 áður en hann fór í Þrótt. Árið 2001 varð hann meðal annars markahæstur í efstu deild þegar að Skagamenn urðu Íslandsmeistarar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.