Fotbolti.net
05.11.09 - 18:37
Magnús Már Einarsson

Jónas Grani ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari hjá HK (Staðfest)

Hafsteinn Briem gerir nýjan samning

Jónas Grani ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari hjá HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónas Grani Garðarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá HK en hann mun einnig leika með liðinu í fyrstu deildinni næsta sumar.
Jónas Grani skrifaði undir hjá HK á fréttamannafundi nú undir kvöld en þess 36 ára gamli framherji lék með Fjölni í sumar. Þar skoraði hann sjö mörk í nítján leikjum í Pepsi-deildinni.

Frá 1998-2005 lék Jónas Grani með FH áður en hann fór í Fram þar sem hann skoraði meðal annars þrettán mörk árið 2007.

Jónas Grani, sem lék áður með Völsungi, fór síðan aftur til FH árið 2008 áður en hann gekk til liðs við Fjölni síðastliðinn vetur. Hann mun núna aðstoða Tómas Inga Tómasson nýráðinn þjálfara HK og leika með liðinu.

Þá skrifaði miðjumaðurinn efnilegi Hafsteinn Briem undir nýjan tveggja ára samning við HK í dag. Félög úr efstu deild sýndu Hafsteini áhuga í haust en hann ákvað að vera áfram hjá HK.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.