Van Dijk íhugaði Real - Anderson til í að fara til United - Sancho má fara frítt - Real ætlar að selja Vinicius
   mið 05. nóvember 2025 18:05
Elvar Geir Magnússon
Davíð Smári gerði tveggja ára samning við Njarðvík (Staðfest)
Lengjudeildin
Davíð Smári eftir undirskriftina.
Davíð Smári eftir undirskriftina.
Mynd: Fótbolti.net - Stefán Marteinn
Davíð gerði Vestra að bikarmeistara.
Davíð gerði Vestra að bikarmeistara.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Davíð Smári Lamude hefur verið kynntur sem nýr þjálfari Njarðvíkur. Viðtal við Davíð verður birt hér á Fótbolta.net í kvöld.

Davíð, sem stýrði Vestra til bikarmeistaratitilsins í sumar, skrifaði undir samning við Njarðvíkinga út tímabilið 2027.

„Davíð sem er einn af mest spennandi þjálfurum landsins kemur til liðs við okkur frá Vestra þar sem hann hefur verið við stjórnvölinn frá árinu 2023," segir í tilkynningu Njarðvíkinga.

Á tíma sínum hjá Vestra kom Davíð liðinu upp úr Lengjudeildinni í Bestu deildina á sínu fyrsta ári, hélt sæti liðsins í Bestu deildinni árið eftir og vann á liðnu tímabili fyrsta bikarmeistaratitil í sögu Vestra. Hann var látinn fara eftir slæmt gengi liðsins eftir bikarúrslitaleikinn.

Áður en Davíð tók við Vestra hafði hann stjórnað hjá Kórdrengjum á árunum 2017-2022 þar sem liðið fór alla leið upp úr 4. deild upp í Lengjudeildina.

„Njarðvík býður Davíð hjartanlega velkominn til starfa hjá félaginu og vonast til að samstarfið verði farsælt. Unnið er að því að klára þjálfarateymið sem verður Davíð innan handar og verður það tilkynnt þegar það liggur fyrir," segir í tilkynningunni.

Njarðvíkingar féllu út í undanúrslitum umspils Lengjudeildarinnar í sumar undir stjórn Gunnars Heiðars Þorvaldssonar sem er að taka við HK. Stefna félagsins er að fara alla leið upp næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner