Linda Líf Boama hefur skrifað undir hjá Kristianstad í Svíþjóð. Linda Líf, sem er fædd árið 2001, skoraði átta mörk í 20 leikjum fyrir Víking í Bestu deildinni í sumar.
Nik Chamberlain, sem stýrt hefur Breiðabliki, er að taka við Kristianstad.
Nik Chamberlain, sem stýrt hefur Breiðabliki, er að taka við Kristianstad.
Tilkynningin frá Víkingi
Linda Líf Boama, leikmaður Víkings, hefur skrifað undir samning við Kristianstads DFF. Linda gerir þriggja ára samning við félagið. Kristiandstads leikur í efstu deild í Svíþjóð og situr í 6. sæti þegar tvær umferðir eru eftir í deildinni.
Linda er sóknarmaður fædd árið 2001, spilaði með Víking frá 4.flokki og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir HK/Víking árið 2017. Hún hefur á ferli sínum í meistaraflokki spilað 155 leiki og gert í þeim 74 mörk.
Linda Líf spilaði sinn 100. leik fyrir Víking nú í haust en hún hefur verið lykilleikmaður í allri uppbyggingu og á stóran þátt í velgengni liðsins undanfarin ár.
Linda varð bikarmeistari með Víking árið 2023 og liðið varð Lengjudeildarmeistari og tók skrefið uppí Bestu deildina. Víkingur lenti í þriðja sæti á fyrsta ári sínu í Bestu deildinni og tók síðan fimmta sætið eftir brösuga byrjun á mótinu í ár.
Linda á 12 leiki og 3 mörk í leikjum fyrir yngri landslið Íslands og við hlökkum til að sjá hana bæta við sig leikjum fyrir Íslands hönd.
Knattspyrnudeild Víkings óskar Lindu Líf velgengni og hamingju í Svíþjóð og um leið þökkum við Lindu kærlega fyrir sitt framlag til félagsins.
Athugasemdir


