05.12.06 - 11:13
Magnús Már Einarsson
Daníel Einarsson í Fram (Staðfest)

Dáníel í leik með Haukum árið 2005.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Dáníel í leik með Haukum árið 2005.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Framarar hafa ákveðið að semja við miðjumanninn Daníel Einarsson sem hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarið og hefur hann skrifað undir tveggja ára samning.
Daníel sem er 23 ára lék á sínum yngri árum með Haukum og FH en hann lék með ÍH í þriðju deildinni í sumar og skoraði fjórtán mörk í ellefu leikjum þegar að liðið komst upp í aðra deild.
Árið 2005 skoraði Daníel eitt mark í sautján leikjum í fyrstu deildinni en samkvæmt heimasíðu Fram er hann duglegur og baráttuglaður leikmaður.
Þá hafa Framarar einnig gengið frá því að Birkir Kristinsson muni áfram verða markvarðarþjálfari liðsins.

Heimild: Heimasíða Fram