06.01.07 - 07:23
Savio og Herreira til Real Sociedad (Staðfest)

Savio í baráttu við Rivaldo í leik Real Madrid og Barcelona fyrir nokkrum árum.

Mynd: Getty Images

Savio í baráttu við Rivaldo í leik Real Madrid og Barcelona fyrir nokkrum árum.

Mynd: Getty Images
Real Sociedad fengu góðan liðsstyrk í gær þegar tveir leikmenn skrifuðu undir samninga við félagið sem er í mikilli botnbaráttu í La Liga á Spáni. Þetta eru Argentínski framherjinn Germán Herreira og Savio Bartolini sem áður var í herbúðum Real Madrid.
Real Sociedad hefur aðeins skorað tíu mörk í sextán leikjum, fæst allra liða í La Liga þar sem þeir sitja í næst síðasta sætinu. Miguel Ángel Lotina, stjóri liðsins, vonast til að hinn 23 ára gamli Herreira nái að raða inn nokkrum mörkum en hann gerði samning út tímabilið. Herreira kemur frá San Lorenzo de Almagro en hann var í láni þaðan hjá Gremio í Brasilíu. Fyrir Gremio skoraði hann níu mörk í 25 leikjum.
Savio skrifaði einnig undir samning út tímabilið en hann fór frá Real Zaragoza eftir síðasta tímabil og gekk í raðir CR Flamengo í heimalandi sínu, Brasilíu. Hann er 32 ára gamall og kostaði Sociedad um 1,5 milljónir punda.
Félagið fékk einnig til sín Argentínska varnarmanninn Víctor López á þessum fyrstu dögum janúarmánaðar.

Heimild: Uefa.com