06.01.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Valencia fær miðjumann frá Boca Juniors (Staðfest)

Ever Banega í leik með Boca Juniors.

Mynd: Getty Images

Ever Banega í leik með Boca Juniors.

Mynd: Getty Images
Valencia hefur keypt miðjumanninn Ever Banega frá Boca Juniors en hann hefur samþykkt fimm og hálfs árs samning við félagið.
Þessi 19 ára gamli leikmaður mun kosta Valencia átján milljónir evra en hann fór í læknisskoðun á Spáni í gær.
Honum er ætlað að fylla skarðið sem David Albelda og Manuel Fernandes skilja eftir sig hjá liðinu.
Ronald Koeman þjálfari Valencia hefur ákveðið að Albelda muni ekki spila fyrir félagið framar og þá er Fernandes væntanlega á förum í þessu mánuði.
Valencia hefur gengið illa að undanförnu en liðið er sem stendur í sjöunda sæti spænsku deildarinnar og hefur ekki náð sigri í síðustu fimm deildarleikjum.