Fotbolti.net
06.01.12 - 12:03
Magnús Már Einarsson

Thierry Henry til Arsenal (Staðfest)

Löglegur gegn Leeds á mánudag

Thierry Henry.

Thierry Henry.

Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur gengið frá samningi um að fá Thierry Henry á láni frá New York Red Bulls næstu tvo mánuðina.
Henry er orðinn löglegur með Arsenal og hann gæti því leikið með liðinu gegn Leeds í enska bikarnum á mánudagskvöld.

Thierry Henry er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Arsenal en hann kom til félagsins árið 1999.

Þessi 34 ára gamli leikmaður er markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi en hann skoraði 226 mörk í öllum keppnum með liðinu áður en hann gekk í raðir Barcelona árið 2007.

Henry fær núna tækifæri til að bæta fleiri mörkum við áður en hann fer aftur til Bandaríkjanna til að leika með New York Red Bulls í MLS-deildinni.

Henry mun leika í treyju númer 12 hjá Arsenal en Theo Walcott er í dag í treyju númer 14 sem Frakkinn lék í á sínum tíma.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.