Fotbolti.net
06.02.09 - 16:39
Magnús Már Einarsson

Magnús Már Lúðvíksson í KR (Staðfest)

Magnús Már Lúðvíksson í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Magnús Már Lúðvíksson hefur gert eins árs samning við KR en hann kemur til félagsins frá Þrótti. Magnús staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.
Magnús Már hætti hjá Þrótti fyrr í vetur og hafði æft með KR-ingum undanfarnar vikur áður en hann samdi við félagið.

Undanfarin þrjú ár hefur Magnús Már verið fastamaður hjá Þrótti og ekki misst af deildarleik hjá liðinu.

Síðastliðið sumar skoraði hann þrjú mörk í 22 leikjum í Landsbankadeildinni en Magnús, sem er 27 ára, getur leikið bæði á kantinum sem og í fremstu víglínu.

Áður en hann kom til Þróttar lék Magnús með liði ÍBV en hann hefur einnig leikið með Val hér á landi sem og uppeldisfélaginu KR.

Magnús Már hefur fengið leikheimild með KR og getur hann leikið með liðinu gegn Þrótti í Reykjavíkurmótinu á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.