06.02.09 - 16:41
Hafliði Breiðfjörð
Runólfur Sveinn Sigmundsson í Þrótt (Staðfest)

Runólfur ásamt Finnboga formanni Þróttar í dag.

Mynd: Þróttur

Varnarmaðurinn Runólfur Sveinn Sigmundsson er genginn til liðs við Þrótt frá Víkingi en þetta var staðfest á vefsíðu Þróttar. Runólfur skrifaði undir tveggja ára samning við Þrótt í dag.
Runólfur er 19 ára gamall. Hann er uppalinn hjá Fylki og var fyrirliði hjá 2. flokki félagsins og vann með þeim Íslandsmeistaratitil í fyrrasumar.
Hann hefur leikið með U17, U18 og U19 ára landsliðum Íslands og getur spilað allar stöður í vörninni. Hann gekk til liðs við Víking fyrir síðustu leiktíð og spilaði með liðinu 10 leiki í 1. deildinni í sumar auk þriggja bikarleikja en missti nokkuð úr vegna meiðsla.
Runólfur verður væntananlega í hóp á morgun í leik Þróttar gegn KR í Reykjavíkurmótinu.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Þróttar frá síðustu leiktíð. Áður höfðu komið Skúli Jónsson frá KR, Henrik Bödker frá Hetti og Oddur Ingi Guðmundsson frá Esjberg. Félagið hefur hinsvegar misst þá Michael Jackson, Jesper Sneholm, Bjarka Frey Guðmundsson, Magnús Már Lúðvíksson og Sigmund Kristjánsson.

Heimild: Vefsíða Þróttar