06.02.09 - 17:40
Alexander Freyr Tamimi
Prince Rajcomar í KR (Staðfest)

Prince Rajcomar er genginn í raðir KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Prince Rajcomar er genginn í raðir KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hollendingurinn Prince Rajcomar er genginn til liðs við Knattspyrnufélag Reykjavíkur en þetta fékk staðfest á heimasíðu félagsins.
Prince hefur leikið með Breiðablik undanfarin tvö tímabil en hann átti erfitt uppráttar hjá Kópavogsliðinu síðastliðið sumar og mátti hann þola mikla bekkjarsetu.
Hann spilaði 18 leiki og skoraði í þeim sjö mörk í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar.
Prince hóf atvinnumannaferil sinn með Fortuna Sittard í næstefstu deild í Hollandi og skoraði átta mörk í 50 leikjum fyrir félagið áður en hann gekk til liðs við FC Utrecht í efstu deild í Hollandi þar sem hann lék 20 leiki.
Hann var síðan lánaður til Den Bosch þar sem hann lék tímabilið 2005/2006 en hann kom síðan til Breiðabliks fyrir sumarið 2007.
Hann á að baki langan landsliðsferil með yngri landsliðum Hollands þar sem hann lék frá U-14 ára landsliðinu upp í U-20 ára. Þar lék hann með Ryan Babel leikmanni Liverpool og Royston Drenthe sem núna leikur með Real Madrid svo einhverjir séu nefndir.
Ásamt Prince kom Magnús Már Lúðvíksson til liðsins í dag og gætu þeir leikið sinn fyrsta leik fyrir KR þegar liðið mætir Þrótti á morgun.

Heimild: Heimasíða KR