Fotbolti.net
06.02.12 - 13:12
Hafliði Breiðfjörð

Jamie McCunnie ekki með ÍR - Tveir semja (Staðfest)

McCunnie við undirskriftina hjá ÍR. Nú er ljóst að hann getur ekki verið með liðinu í sumar.

McCunnie við undirskriftina hjá ÍR. Nú er ljóst að hann getur ekki verið með liðinu í sumar.

Canon

Mynd: ÍR

Ekkert verður úr því að Jamie McCunnie spili með ÍR í 1. deildinni í sumar en hann hefur fengið samningi sínum við félagið rift af persónulegum ástæðum.
Félagið hefur hinsvegar fengið til liðs við sig tvo leikmenn, þá Fitim Morina og Vilhjálm Þór Vilhjálmsson sem báðir hafa samið við félagið.

McCunnie hafði komið til ÍR frá Grindavík í haust og átti verða spilandi aðstoðarþjálfari auk þess sem hann verður aðalþjálfari í nýrri afreksakademíu knattspyrnudeildar félagsins.

Hann spilaði með liðinu í Reykjavíkurmótinu í síðasta mánuði en varð svo að hætta við af persónulegum ástæðum sem tengjast fótbolta ekki.

Fitim Morina er tvítugur og kemur til ÍR frá Val og skrifar undir tveggja ára samning. Hann var á síðustu leiktíð á láni hjá Njarðvík í 2. deildinni og spilaði þá 10 leiki.

Vilhjálmur Þór er 24 ára gamall og kemur frá Hamri í Hveragerði. Hann hóf meistaraflokksferilinn með Fram árið 2006 og hefur einnig leikið með Aftureldingu. Hann á að baki 54 meistaraflokksleiki. Hann gerði þriggja ára samning við ÍR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.