06.02.12 - 16:24
Elvar Geir Magnússon
Nielsen í BÍ/Bolungarvík (Staðfest) - Vujic áfram

Goran Vujic spilar með BÍ/Bolungarvík næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

BÍ/Bolungarvík hefur samið við danska varnarmanninn Dennis Nielsen en hann er væntanlegur til landsins um miðjan mánuðinn. Nielsen er 21 árs og var til reynslu hjá Djúpmönnum í janúar.
Nielsen var á mála hjá Varde í dönsku annarri deildinni. Hann kom til Íslands í gegnum Henrik Bödker, einn af aðstoðarþjálfurum Stjörnunnar.
„Dennis æfði með okkur í viku og spilaði einn leik. Hann hefur margt til brunns að bera þessi strákur. Hann er stór og sterkur og fínn á boltann. Hann var ekki í toppástandi þegar hann kom hingað en þegar hann kemst í fínt form held ég að við séum að fá flottan leikmann,\" segir Samúel Samúelsson, formaður BÍ/Bolungarvíkur.
Framherjinn Goran Vujic verður áfram með BÍ/Bolungarvík en hann hefur verið að glíma við hnémeiðsli síðustu ár og gat aðeins leikið tvo leiki snemma sumars í fyrra.
Samúel segir að í vinnslu sé að styrkja liðið frekar og eru leikmenn erlendis frá undir smásjánni.
„Þetta hefur verið erfitt í vetur, við erum með lítinn hóp og margir verið meiddir. Úrslitin í þessum æfingaleikjum hafa ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir. Það er samt febrúar og BÍ/Bolungarvík hefur varla getað haldið út æfingum á þessum árstíma. Við erum því alveg rólegir þó að sjálfsögðu sé ekki gott að tapa leikjum,\"
BÍ/Bolungarvík endaði í sjötta sæti 1. deildarinnar í fyrra undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Jörundur Áki Sveinsson tók við þjálfun liðsins í vetur.