06.02.12 - 14:20
Magnús Már Einarsson
Robert Sandnes í Selfoss (Staðfest)
Peter Klancar kemur ekki

Selfyssingar hafa fengið liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Selfyssingar hafa gert tveggja ára samning við norska miðjumanninn Robert Sandnes en þetta kemur fram á vef Sunnlenska.
Sandnes lenti á Íslandi í dag en hann er 22 ára gamall örvfættur miðjumaður sem getur einnig leikið stöðu vinstri bakvarðar. Hann kemur til Selfoss frá norska úrvalsdeildarliðinu Álasundi.
Sandnes kom á reynslu til Selfyssinga í janúar og lék meðal annars með liðinu gegn ÍBV í Fótbolta.net mótinu þar sem hann skoraði frábært mark.
Af öðrum leikmannafréttum úr herbúðum Selfoss má nefna að í desember höfðu Selfyssingar gert munnlegt samkomulag við Peter Klančar um að leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar en hann var hjá Selfyssingum síðari hlutann á síðasta tímabili.
Breyttar aðstæður hjá leikmanninum hafa hins vegar orðið til þess að hann kemur ekki til landsins.

Heimild: Sunnlenska.is